Rafrænn miði
Við bjóðum einstaka eftirmiðdags göngu á Straumnesfjall á Hornströndum sem liggur upp af Aðalvík. Við göngum gamlan veg sem liggur upp á fjallið en ameríski herinn byggði radarstöð á fjallinu á 6. áratug síðustu aldar. Rústirnar eru enn á fjallinu og er magnað að heimsækja þennan stað og reyna að setja sig í stöðu þeirra hermanna sem var gert að starfa þarna á hjara veraldar.
Við förum frá Ísafirði síðdegis og komum til baka eftir miðnætti sem gerir þetta að einstöku tækifæri til að upplifa sumarkvöld og miðnætursólina á einstökum stað.
Straumnesfjall ganga.
Vinsamlega verið á bryggju Sjóferða við Ásgeirsgötum amk 30 mínútum fyrir brottför kl 15:30. Bátsferðin til Aðalvík tekur rúmlega klukkutíma og er notast við gúmmítuðru til að ferja farþega í land. Við tekur ganga upp á Straumnesfjall og út á ysta odda þess. Við göngum svo niður í Rekjavík og þaðan yfir til Aðalvíkur.. Bátur mun svo sækja okkur þangað um miðnætti og fara með aftur til Ísafjarðar.
Nesti, vatn og fatnaður.
Það er mikilvægt að vera vel búin fyrir gönguna og gera ráð fyrir regni og vindi. Góðir gönguskór eru nauðsynlegir. Gestir þurfa að vera með sitt eigið nesti og vatnsbrúsa.
The boat ride can be rough as we cross the open sea.
Challenging for people afraid of heights.
8,5 Klst
We will send you an offer for this tour in the period you prefer, please provide your personal details and information about your group.