Rafrænn miði
Hlöðuvík er á norðanverðum Hornströndum og liggur á milli Fljótavíkur og Hælavíkur. Tvö hús eru við gamla bæjarstæðið að Búðum, Búðabær og Búðasel og eru þau í eigu afkomenda Hlöðuvíkurbænda. Einnig er þar náðhús fyrir ferðamenn.
Fyrir miðjum firðinum er reisulegt fjall sem nefnist Álfsfell. Fjallið skilur að Hlöðuvík og Kjaransvík.
Sigling til Hlöðuvíkur tekur u.þ.b. 2 klukkutíma frá Bolungarvík, lengd siglingar eru 30NM eða 55,6 km. Siglt er um Ísafjarðardjúp þar sem oft sjést til hvala af ýmsum tegundum þó hnúfubakur sjáist þar líklega oftast. Siglt er fyrir Rit, framhjá hinni fögru Aðalvík, framhjá Straumnesi, Rekavík bak Látur, Fljótavík, Kögur og inn Hlöðuvíkina.
Í Hlöðuvík eru legufæri sem legið er við og farþegar og farangur fluttur í land með léttabát. Áður er farið er frá borði er rétt að óska eftir björgunarvesti, það er þó valkvæmt. Auðvelt er að komast í léttabátinn en í skut farþegabátsins er hlið og pallur sem gengið er um á leið yfir á léttabátinn. Mikilvægt er að halda í hönd áhafnarmeðlims sem stendur á palli farþegabásins þegar gengið er um borð í léttabátinn. Það er í lagi að stíga á belgi bátsins nema einhversskonar broddar séu undir sólum. Um leið og komið er um borð í léttabátinn skal setjast strax niður á belgina og halda sér í öryggislínur sem liggja eftir belgjunum. Halda skal kyrru fyrir þar til áhafnarmeðlimur biður einn og einn í einu að standa upp og fara frá borði þegar komið er í fjöruna
Mikilvægt er að aðeins einn standi upp í einu, standi fleiri en einn gæti báturinn skautað til hliðar og farþegi fallið fyrir borð. Þegar farangur er settur í fjöruna hjálpast allir við að bera farangurinn hver sem á hann. Farangurinn er svo sorteraður þegar í land er komið og hver tekur sinn búnað.
Velkomin í Hlöðuvík
Sigling með farþegabátnum Hesteyri ÍS 95, frá Bolungarvík til Hlöðuvíkur
Hlý viðeigandi föt og búnað í samræmi við veðurspá
2 Klst
We will send you an offer for this tour in the period you prefer, please provide your personal details and information about your group.