Rafrænn miði
Flæðareyri liggur rétt utan Leirufjarðar innst í Jökulfjörðum, innan við Höfðaströnd. Þaðan er tiltölulega þægileg gönguleið t.d. yfir á Höfðaströnd og til Grunnavíkur.
Í Flæðareyri stendur samkomuhús ungmennafélagsins sem var í Grunnavíkurhreppi, byggt á fjórða áratug síðustu aldar. Halldór B. Halldórsson á Ísafirði gaf Ungmennafélaginu Glað í Grunnavíkurhreppi lóð undir húsið með gjafabréfi dagsettu á Ísafirði 14. ágúst 1933,en hann var eigandi jarðarinnar Höfða. Segir hann í bréfinu að lóðin sé 2500 fermetrar á svo nefndri Flæðareyri, og að þess utan hafi félagið frían fimm metra breiðan veg til sjávar frá lóðinni. Segir og að félagið beri „ábyrgð á spjöllum ef verða kunni utan lóðatakmarkanna gagnvart ábúendum jarðarinnar af félagsins völdum“. Að sögn gaf Halldór að auki tuttugu poka af sementi til byggingar samkomuhússins og hver bóndi í hreppnum gaf lamb til þess að standa undir efniskostnaði en sameiginlega unnu hreppsbúar að því að reisa húsið.
Flæðareyrarhátið er haldin fjórða hvert ár, næst verður hún haldin fyrstu helgi júli mánaðar árið 2021. Þangað koma afkomendur svæðisins og vinir gjarnan, hittast og skemmta sér, syngja og dansa við lifandi tónlist í félagsheimilinu.
Velkomin á Flæðareyri
Sigling til Flæðareyrar tekur um 70-75 mínútur frá Bolungarvík, lengd siglingar er um 17,5 NM eða 32,5 km. Siglt er um Ísafjarðardjúp þar sem oft sjést til hvala af ýmsum tegundum þó hnúfubakur sjáist þar líklega oftast. Siglt er fram hjá Bjarnarnúpi, Grunnavík og inn Jökulfirði, framhjá Höfðaströnd og inn að Flæðareyri.
Á Flæðareyri er engin bryggja og því er notast við léttabát til að fara í land. Áður er farið er frá borði er rétt að óska eftir björgunarvesti, það er þó valkvæmt. Auðvelt er að komast í léttabátinn en í skut farþegabátsins er hlið og pallur sem gengið er um á leið yfir á léttabátinn. Mikilvægt er að halda í hönd áhafnarmeðlims sem stendur á palli farþegabásins þegar gengið er um borð í léttabátinn. Það er í lagi að stíga á belgi bátsins nema einhversskonar brottar séu undir sólum. Um leið og komið er um borð í léttabátinn skal setjast strax niður á belgina og halda sér í öryggislínur sem liggja eftir belgjunum. Halda skal kyrru fyrir þar til áhafnarmeðlimur biður einn og einn í einu að standa upp og fara frá borði.
Mikilvægt er að aðeins einn standi upp í einu, standi fleiri en einn gæti báturinn skautað til hliðar og farþegi fallið fyrir borð. Þegar farangur er settur í fjöruna hjálpast allir við að bera farangurinn hver sem á hann. Farangurinn er svo sorteraður þegar í land er komið og hver tekur sinn búnað.
Velkomin á Flæðareyri
Sigling með farþegabátnum Hesteyri ÍS 95, frá Bolungarvík til Flæðareyrar
Hlý og viðeigandi föt í samræmi við veður
1,3 Klst
We will send you an offer for this tour in the period you prefer, please provide your personal details and information about your group.