Whales Hauganes

Vinningur: Whales Hauganes gefur gjafabréf fyrir 5 manns í hvalaskoðun í hjarta norðurlands

Velkomin á Hauganes – einstaka fiskiþorpið við fjörðinn!

Sérhópa-, hvata- og fjölskylduferðir með Hvalaskoðuninni á Hauganesi – elstu hvalaskoðun landsins

Komdu í hvalaskoðun og sjóstöng með Hvalaskoðuninni á Hauganesi – með fjölskylduna, vinina, vinnuna eða skólakrakkana.

Leitaðu upplýsinga um ferðirnar okkar, verð og fyrirkomulag í síma 867 0000, í EP hér eða á whales@whales.is.

Hvalaskoðunin á Hauganesi er elsta hvalaskoðun landsins og er staðsett í hjarta Eyjafjarðar. Við gerum út tvo klassíska íslenska eikarbáta sem þykja einkar stöðugir og þægilegir. Allar ferðir eru kolefnisjafnaðar sem felur í sér að við gróðursetjum tré fyrir hverja ferð til að vega upp á móti kolefnisútblæstri ferðarinnar, ásamt því að við blöndum olíuna með lífdísli. Við erum í samstarfi við Vistorku.

Sumarið 2019 sáum við hvali í öllum okkar ferðum, þar á meðal hnúfubaka, hrefnur, hnísur, háhyrninga og steypireyðar. Hvalirnir voru að meðaltali í 20 mínútna fjarlægð frá Hauganesi og því stutt vegalengd til að líta þessar fallegu og jafnframt tignarlegu skepnur augum.

https://whales.is/islenska/