Megazipline
Vinningur: Gjafabréf frá Mega Zipline í frábæra upplifun og skemmtilegar minningar
Mega Zipline er lengsta og hraðasta sviflína á Íslandi og þótt víðar væri leitað.
Línan er staðsett í Kömbunum við Hveragerði og fylgir Svartagljúfri frá efstu beygju í Kömbunum alveg niður að kaffihúsinu við upphaf gönguleiðarinnar inn í Reykjadal.
Gilið er lítt þekkt náttúruperla sem skartar fallegum fossum og stórbrotnu útsýni.
Línurnar eru tvær og liggja samhliða svo tveir geta tekið flugið í einu.
Boðið er upp á tvær leiðir til að fljúga.
Hægt er að sitja eða liggja,
Frjáls eins og fuglinn eða fljótur eins og fálkinn.
Línurnar eru 1 km. að lengd og hallinn er að meðaltali 10°. Hröðustu fálkarnir geta náð allt að 120 km hraða.
Í fallínunni er hægt að upplifa frjálst fall úr 13 metrum sem stöðvar mjúklega á síðustu metrunum með tilheyrandi adrenalínflæði.
Svífðu eins og lundi úr lundabjargi!Taktu flugið með Mega Zipline.